Hmmm...ekkert mjög dugleg að uppfæra hér...
Það nýjasta og jafnframt skemmtilegasta er, að ég sótti um í tónlistarháskólanum hér í Parma, við Gissur fengum að vita að síðasti skiladagur á umsókn væri 10. maí, en 10. maí var það of seint (fanst skólastjóranum skyndilega), þannig að ég fæ ekki einu sinni að taka inntökupróf í þennan ágæta skóla. Svona er þetta nú hér á Ítalíu, ekki hægt að treysta neinu sem manni er sagt.
Þar sem inntökuprófið átti að vera 5. júlí, komum við fyrr heim, eða um miðjan júní:)
Ég fer þá bara í staðin í inntökupróf í Scuola di musica di Fiesole, sem er afar huggulegur tónlistarskóli í Toscanahæðunum og þar kennir minn kæri Massimo.
Það er nú það.
Sigrun
Af Parmalífi........
venerdì, maggio 17, 2002
martedì, maggio 07, 2002
lunedì, maggio 06, 2002
Myndir
Þetta eru gellur á níunda áratugnum, Elísabet, Sjöfn frænka og Sigrún, og síðan Sigrún í afmæli að drekka kók úr gleri með röri:)
Jæja, þetta er alveg að koma, fyrstu fréttir á dagskrá eru að þetta er svokökkuð blöggsíða okkar Gissurar (Finnur, heitir þetta ekkert á íslensku???) og að Gissur tækjasjúki keypti sjónvarp fyrir gsmsímapeningana sína, en hann hefur ekki notað símann sinn í 4 mánuði-duglegur kallinn. Næstu fréttir eru að við ætlum að koma heim í sumar og gifta okkur...sumir vita það kanski????? Bara svo að vð geturm hætt að lifa í synd. Takkogbæ.